Kosningaáherslur Finns 2026
Byggjum grænni borg fyrir fólk en ekki fjárfesta!
Reynsla er mikilvæg og skiptir máli í stjórnmálum. Það sem skiptir þó jafn miklu ef ekki meira máli eru sterk gildi og skýr pólitísk sýn. Ég hef alls konar reynslu sem ég gæti sagt frá en mig langar frekar að draga fram þær málefnaáherslur sem ég vil berjast fyrir fái ég traustið til að leiða VG á sameiginlegum lista með Vori til vinstri í Reykjavík.
Í færslunni Hver er frambjóðandinn Finnur? fer ég stuttlega yfir minn bakgrunn og mín þrjú helstu baráttumál fyrir kosningarnar í vor en hér að neðan er ítarlegri upplistun á þeim málefnaáherslum sem mér finnst skipta mestu máli til að við getum skapað grænni og mannvænni borg fyrir okkur öll.
Húsnæðis- og skipulagsmál
Við þurfum að byggja meira ódýrt, óhagnaðardrifið og almennt húsnæði þar sem græn svæði, ljósvist og öflugar tengingar við almenningssamgöngur, skóla og aðra þjónustu ráða för. Uppbygging húsnæðis hefur verið of mikið á forsendum markaðarins, á forsendum fjárfesta sem hafa það meginmarkmið að græða. Þetta hefur leitt til einsleitni, of mikils þéttleika, lélegra birtuskilyrða og aðför að grænum svæðum. Við þurfum að snúa þessari þróun við.
Stóraukum framboð af óhagnaðardrifnu húsnæði á félagslegum grunni.
Forgangsröðum ljósvist, hljóðvist, og aðgengi að grænum svæðum, skólum og almenningssamgöngum við uppbyggingu húsnæðis.
Bönnum lóðabrask og lækkum gjaldið fyrir byggingarrétti.
Þrýstum á þingið að setja á leigubremsu.
Búum til Grænt skipulag Reykjavíkur og setjum skýrar kröfur til uppbyggingaraðila um meiri gróður í byggð (3-30-300 reglan), mannsæmandi ljósvist, svæði frátekin fyrir gangandi og hjólandi innan lóðamarka, mengun á verkstað og umhverfisvænni byggingarefni.
Búum til tímasetta, tölusetta og fjármagnaða aðgerðaáætlun til að tryggja innleiðingu Borgarhönnunarstefnu í samráði við umhverfissálfræðinga.
Stöndum vörð um vaxtamörkin.
Finnum nýjan stað fyrir flugvöllinn í samræmi við samning Reykjavíkur og ríkisins.
Samgöngumál
Umferð í borginni einkennist of oft af hnútum og töfum á álagstímum með tilheyrandi loftmengun. Hluti vandans er að vistvænir samgöngumátar eru ekki nógu raunhæfur valkostur. Forgangsröðum fjármunum í öflugri og aðgengilegri almenningssamgöngur ásamt betri og öruggari hjóla- og göngustígum. Það að gera almenningssamgöngur og virkar samgöngur aðgengilegri og ódýrari fyrir okkur öll dregur úr umferð, mengun og kostnaði fyrir alla borgarbúa.
Bætum leiðakerfi, aukum tíðni og fjölgum sérakreinum fyrir Strætó strax.
Frítt í strætó fyrir ungt fólk, námsmenn og eldri borgara.
Full orkuskipti Strætó til að spara losun, loftmengun og pening - allir nýir vagnar eiga að ganga fyrir rafmagni.
Prufukeyrum tímabundna lokun akreina á stofnbrautum til að Strætó njóti forgangs á álagstímum.
Flýtum uppbyggingu Borgarlínu.
Lest milli Reykjavíkur og Keflavíkur fyrir árið 2035.
Leggjum fleiri, þéttari og samtengdari hjólastíga.
Málum hjólastíga rauða og skiljum þá betur frá bílaumferð.
Bætum lýsingu á göngu- og hjólastígum.
Fjölgum undirgöngum, göngubrúm og göngugötum.
Bætum vetrarþjónustu fyrir göngu- og hjólastíga til að auka öryggi og draga úr umferð og förum í tilraun með upphitaða hjóla- og göngustíga.
Stórauka fjölda og gæði hjólastæða og -skýla.
Mengandi bílaumferð takmörkuð á gráum dögum með heilsuspillandi loftgæðum.
Fjölgum göngugötum í miðborginni.
Forgangsröðum Borgarlínu, Sæbrautarstokki og Miklubrautargöngum fram yfir Sundabraut.
Aukum þjónustustig almenningssamgangna áður en bílastæðum er fækkað.
Byggjum bílastæðahús við borgarmörkin og tengjum við lykil Strætó- og Borgarlínuleiðir.
Lægri hámarkshraði bíla á völdum svæðum til að auka öryggi og draga úr mengun.
Umhverfismál
Reykjavík er í lykilstöðu til að vinna að markmiðum Íslands í loftslagsmálum og náttúruvernd og skapa samtímis betri borg fyrir okkur öll. Við eigum að grípa þessi tækifæri á lofti og stefna að því að Reykjavík verði grænasta borgin í Evrópu.
Endurheimtum allt votlendi sem er ekki í nýtingu.
Friðlýsum Skerjafjörð.
Gerum Esjuna að fólkvangi.
Endurheimtum birkiskóga á völdum svæðum í Esjunni.
Útbúum útivistaráætlun fyrir Úlfarsfell í samráði við íbúa og náttúruunnendur borgarinnar.
Stofnum umhverfissjóð fyrir borgarbúa sem grasrótarátak til að breyta gráu í grænt.
Sleppum slættinum á völdum svæðum og veljum vandlega viljandi villt svæði.
Tryggjum umhverfisvænni og heilsusamlegri skólamat.
Bætum umsjón með náttúruperlum borgarinnar (sem ekki er búið að friðlýsa) með því að ráða borgarlandvörð, t.d. með þjónustusamningi við Náttúruverndarstofnun.
Færum okkur úr sorptunnum yfir í djúpgáma til að bæta þjónustu og spara pening.
Nýtum snjallausnir til að búa hvata til að draga úr úrgangi - þau sem henda minna ættu að borga minna.
Fjölgum ruslatunnum á almannafæri.
Ýtum undir hringrásarhagkerfið með fleiri hringrásarsöfnum í samstarfi við Circular Library Network.
Veitum afslátt af gjöldum til fyrirtækja sem bjóða upp á hringrásar- og viðgerðarþjónustu.
Réttlátt leikskólakerfi
Leikskólamál borgarinnar eru í töluverðri flækju. Mygla, mönnunarvandi, biðlistar og fleira hefur sett stórt strik í reikninginn. Þetta vita öll sem eiga börn í leikskólum eða hafa fylgst með fréttum undanfarin ár. Þetta leysum við með því að fjárfesta í leikskólum til að tryggja mönnun og fyrirsjáanleika með almennilegum launum og betri starfsaðstöðu án þess að ráðast í íþyngjandi aðgerðir gagnvart foreldrum.
Fjárfestum í starfsfólki leikskóla, m.a. með bættum starfsaðstæðum.
Byggjum fleiri og betri leikskólabyggingar sem uppfylla þarfir barna og starfsfólks.
Bjóðum upp á gjaldfrjálsan leikskóla strax að loknu fæðingarorlofi.
Tryggjum systkinaforgang til að foreldrar séu ekki með börn á mörgum leikskólum í sitthvorum enda borgarinnar.
Upprætum atvinnumiðaða vinnumenningu og setjum þarfir fjölskyldna í forgang þegar kemur að vinnutíma og sveigjanleika. Hér þarf Reykjavíkurborg að setja gott fordæmi.
Tryggjum faglegar ráðningar með skilyrðum um lágmarks íslenskukunnáttu og íslenskukennslu fyrir starfsfólk á vinnutíma.
Gerum háskólanám til leikskólakennara aðgengilegra með betri fjarnámsmöguleikum.
Þrýstum á lögfestingu leikskólans til að tryggja fullnægjandi fjármögnun þessa mikilvæga fyrsta skólastigs.
Grunnskólar
Grunnskólarnir eru stærsti útgjaldaliður borgarinnar og við þurfum að tryggja að þessir peningar séu að skila sér í hágæðamenntun og almennilegum starfsaðstæðum og launum kennara og annars starfsfólks grunnskóla. Einnig þarf að huga að frístundaheimilum og aðgengi barna að tómstundum í samhengi við grunnskólann.
Bættar starfsaðstæður kennara og starfsfólks grunnskóla.
Fjölgum sérfræðingum á gólfinu - sálfræðingar, þroskaþjálfar, talmeinafræðingar, félagsráðgjafar.
Byggja fleiri og betri skóla (sem mygla ekki!) og taka mið af hóflegum bekkjastærðum.
Byggja skóla með fjölbreyttum lærdómsrýmum - ekki bara stofur með stólum og borðum.
Öflugri kennslufræðilegur stuðningur við kennara.
Endurskoða menntastefnu borgarinnar með aðkomu kennara og nemenda.
Seinkum skólabyrjun og minnkum um leið umferðarþungann.
Auka símenntunartækifæri kennara í samstarfi við ríkið.
Auka framboð af nýju og framtíðarhæfu námsefni í samstarfi við ríkið.
Tryggjum að starf frístundaheimila sé í samhengi við skólana bæði hvað varðar staðsetningar og opnunartíma.
Fjölgum ungmennahúsum.
Aukum aðgengi barna að íþrótta- og tómstundastarfi óháð bakgrunni og efnahag foreldra.
Hækka þarf frístundastyrk og tryggja að gjald fyrir frístundir hækki ekki hlutfallslega umfram styrkinn.
Öflug velferðarþjónusta
Reykjavíkurborg veitir mikla og góða þjónustu til íbúa sinna og ættu önnur sveitarfélög að taka sér hana til fyrirmyndar. Þó er ýmislegt sem þarf að gera betur til að styðja þéttar við bakið á borgarbúum sem eru í viðkvæmri stöðu.
Tryggja þarf góða þjónustu við fatlað fólk. Fjármagna þarf NPA samninga og byggja auk þess upp öfluga þjónustu á borð við búsetuúrræði, fjölgun atvinnutækifæra og stuðningsþjónustu við hæfi.
Fjárhagsaðstoð þarf að vera mannsæmandi og hana ber að veita skilyrðislaust. Reykjavíkurborg á að halda áfram að bjóða upp á og efla fjölbreytt virkniúrræði og hvetja þannig til almennrar virkni og þátttöku fólks út í samfélaginu.
Eflum heimastuðning og -hjúkrun enn frekar til að mæta þörfum eldri borgara inni á heimilum þeirra.
Tryggjum framlag borgarinnar í að stuðla að stöðugleika og fyrirsjáanleika í starfsemi Samhjálpar.
Höldum áfram að styðja við skaðaminnkandi úrræði og innleiða skaðaminnkandi nálgun þvert á kerfi borgarinnar.
Fjölbreytt borg
Við erum heppin að búa í fjölbreyttri og fallegri borg en við þurfum að taka betur utan um og fagna þessum fjölbreytileika. Fjölbreytileikinn er styrkur sem við þurfum veita meiri athygli og hlúa betur að.
Stöndum vörð um mannréttindaskrifstofu borgarinnar.
Efla forvarnir og fræðslu um hinseginmál, m.a. með stuðningi við S78. Sporna þarf af krafti gegn allri hatursorðræðu.
Skýrari og sterkari inngildingarstefna til að styðja við innflytjendur og bjóða þau velkomin í borgina. Tryggja þarf að innflytjendum sé ekki mismunað á nokkurn hátt í þjónustu sveitarfélaga.
Starfsmönnum borgarinnar af erlendum uppruna skal standa til boða íslenskukennsla þeim að kostnaðarlausu.
Stofna sérstaka fastanefnd um málefni innflytjenda í borginni.
Eflum stuðning við áhugamannaleikhús, menningarbíóhús, sjálfstæð listasöfn, lítil og meðalstór tónleikarými o.s.frv.
Ungt fólk
Ungt fólk er lífæð hvers samfélags en fær þó ekki nógu mikið vægi í ákvarðanatöku. Þegar áskoranir ungs fólks á borð við hrakandi andlega heilsu og húsnæðisvandi eru sífellt að aukast er nauðsynlegt að fulltrúar í borgarstjórn hlusti á ungt fólk og grípi til aðgerða með þeim og fyrir þau.
Fjölbreyttari og öflugri stuðningur við ungt fólk, s.s. lægri þröskuldur í sálfræðiþjónustu t.d. með stuðningi og samningi við Bergið Headspace.
Fleiri almenningsrými þar sem ungt fólk getur hist og kynnst, s.s. ungmennahús, bókasöfn, menningar- og félagsmiðstöðvar.
Gera bókasöfn og önnur opin almenningsrými meira aðlaðandi fyrir ungt fólk t.d. með hlaðvarpsherbergjum, aðgengi að hljóðfærum o.s.frv.
Höfum allar félagsmiðstöðvar og ungmennahús opin a.m.k. til kl. 22:00 alla virka daga og til kl. 22:30 á föstudögum.
Öflugra frístundastarf fyrir börn á grunnskólaaldri.
Eflum forvarnarstarf borgarinnar og jafningjafræðslu með fjölbreyttum hætti.
Frítt í strætó fyrir ungt fólk og námsmenn.
Frítt í sund fyrir 18 ára og yngri.
Stöndum vörð um opnunartíma sundlauga og lengja hann um helgar.







